Viðvörun ef þú reynir að stofna reikning eftir eindaga

3 atkvæði

Það væri frábært ef það kæmi viðvörun (Ertu viss um að þú viljir stofna reikninginn með eindaga í fortíðinni?) ef þú ert að stofna reikning með eindaga fyrir daginn í dag. Ég hef búið til reikning sem drög viku áður, en gleymt að breyta bókunardeginum og sent reikning með dráttarvöxtum á fyrsta degi.

Það væri mögulega hægt að kveikja/slökkva á þessari viðvörun í Stillingum eftir því hvað fólk vill.

Í rýni Tillaga frá: Bergþór Þrastarson Kosið: 01 júl. Athugasemdir 0

Athugasemdir: 0